Sneri aftur eftir níu mánaða fjarveru
Sven Botman, miðvörðurinn öflugi hjá Newcastle United, tók stórt skref í endurhæfingu sinni eftir krossbandameiðsli þegar hann sneri aftur til leiks í gærkvöldi. Botman lék fyrsta klukkutímann í 3:2 sigri með U21-liði Newcastle í leik gegn U21-liði Chelsea á Whitley Park.
Þetta var fyrsti leikur Botman síðan í mars en hann sleit krossband í leik með Newcastle gegn Manchester City í ensku bikarkeppninni á síðustu leiktíð og þurfti að fara í aðgerð og hóf í kjölfarið langt endurhæfingaferli.
Eddie Howe, stjóri Newcastle, er ánægður með framfarir Botman og segir hann líta vel út á æfingum. Enn er óljóst hvenær Botman snýr aftur í aðalliðið en vonir standa til að hann geti tekið þátt í leikjum yfir hátíðirnar.
Howe og Jason Tindall, aðstoðarþjálfari Newcastle, voru á leiknum til að fylgjast með endurkomunni, ásamt nokkrum leikmönnum úr aðalliðinu.