Back to All Events

Newcastle - Liverpool í úrslitaleik Carabou bikarsins!

Newcastle United klúbburinn á Íslandi stendur fyrir glæsilegum viðburði á Ölveri sunnudaginn 16. mars, þegar Newcastle mætir Liverpool í úrslitaleik enska bikarsins á Wembley.Við ætlum að búa til góða stemningu og fagna þessum stórviðburði með okkar fólki!

Skráðu þig á Facebook viðburðinn hér.

📍 Dagskrá

🍔 Tilboð á mat og drykk – boltatilboð á Ölveri
⁉️ Pub-quiz í umsjón stjórnar klúbbsins - hver veit mest?
🎶 Tónlistaratriði – lifandi tónlist til að hita upp fyrir leikinn

🕑 Salurinn opnar kl. 13.00 og dagskrá hefst kl. 14.00.
⚽ Leikurinn sjálfur hefst kl. 16.30.

Staðurinn verður skreyttur í anda Newcastle United – svart-hvíti liturinn verður allsráðandi!Við hvetjum alla stuðningsmenn Newcastle á Íslandi til að fjölmenna og tryggja sér sæti snemma. Þetta verður kvöld sem enginn Newcastle stuðningsmaður vill missa af!Vertu með í hópnum!

Skráðu þig í klúbbinn og taktu þátt í lifandi umræðum um félagið á samfélagsmiðlum.

Newcastle United – við stefnum á bikarinn!

Previous
Previous
March 2

Newcastle - Brighton