Upphafið og glugginn

 

Jón Grétar og Magnús Tindri ásamt Jóni Júlíusi stýra hér fyrsta hlaðvarpi Newcastle klúbbsins á Íslandi sem ber heitið Allt er svart og hvítt.
Hægt er að nálgast þættina á helstu hlaðvarpsveitum Spotify, Podbean, Soundcloud, og YouTube.

Þrír hressir Newcastle spekingar taka stöðuna og kafa djúpt í málefni líðandi stundar. Þeir fara í saumana á leikmannaglugganum, ræða helstu styrkingar og veikleika liðsins, og fara yfir fyrstu fjóra leiki tímabilsins. Þeir horfa einnig fram á veginn og rýna í það sem koma skal.

Spjallið er lifandi, skemmtilegt og fullt af innblásnum umræðum um allt það heitasta í heimi Newcastle United.

 

Spotify.

 

Podbean.

 

Soundcloud.